Meirapróf

Ökuskóli Austurlands kennir og útvegar allt sem þarf til meiraprófs. Meirapróf er samheiti yfir nokkrar tegundir bílprófa. Hægt er að taka meirapróf á leigubíla, hópferðabíla og vörubíla (með eða án eftirvagns). Námið er bæði bóklegt og verklegt og útskrifast nemendur með aukin ökuréttindi í ákveðnum réttindaflokki.

Aukin ökuréttindi (Meirapróf)

 

Hefja má nám til aukinna ökuréttinda 6 mánuðum áður en réttindaaldri er náð. Aldursmörk fyrir vörubíl, eftirvagn og leigubíl eru frá 18 til 23 ára. Sjá nánar hér.

Námið skiptist í grunnnám, framhaldsnám og verklegt nám.

  • Grunnnám:
    Umferðarfræði, 12 kennslustundir
    Umferðarsálfræði, 12 kennslustundir
    Skyndihjálp, 16 kennslustundir
    Bíltækni 12 kennslustundir

 

  • Fyrir vörubílaréttindi bætast við grunnnámið:
    Stór ökutæki, 32 kennslustundir
    12 ökutímar
  • Fyrir eftirvagnaréttindi bætast við vörubílanámið:
    Eftirvagnar, 4 kennslustundir
    7 ökutímar
  • Fyrir rútubifreiðaréttindi bætast við grunnnámið:
    Stór ökutæki, 32 kennslustundir
    Ferða og farþegafræði, 16 kennslustundir
    12 ökutímar (8 tímar viðbót ef viðkomandi er með próf á vörubíl)
  • Fyrir farþegaflutninga á 8 farþega bíl og minna (leigubíl) bætist við grunnámið:
    Ferða og farþegafræði, 16 kennslustundir
    3 ökutímar

Verðskrá:

Gildir frá 1. jan 2024

  • Vörubíll C1 – 210.000kr
  • Vörubíll C – 395.000kr
  • Vörubíll + eftirvagn – 535.000kr
  • Eftirvagn CE – 155.000kr
  • C1 + C1E- 250.000kr
  • Rúta D – 440.000kr
  • Rúta D1 9-16 farþ. – 290.000kr
  • D1 + D1E – 320.000kr
  • Leigubíll – 180.000kr
  • Öll réttindi C+CE+D – 705.000kr
  • D í viðbót við C – 230.000kr
  • D í viðbót við D1 – 240.000kr
  • C í viðbót við C1 – 240.000kr

Eftirspurnir varðandi verðskrá og aðrar samsetningar en koma fram er hægt að koma til skila með hnappnum hér fyrir neðan.

Vakin er athygli á þeim möguleika að sækja um styrki frá t.d. verkalýðsfélögum og fræðslusjóðum.

Miðási 1   |   700 Egilsstöðum   |   893 3652   |   oa@okuskoliausturlands.is   |   kt. 521101-3260